Mér finnst að spila fótbolta það skemmtilegasta sem ég geri í lífinu. Í fótbollta eru tvö lið og tvö mörk. Liðin eiga að reyna að koma fótboltanum yfir marklínununa en ef maður skorar í sitt eigið mark fær maður á sig sjálfsmark og hinir fá þá 1 stig eða 1 mark. Liðið sem skorar fleiri mörk vinnur leikinn en ef það verður jafntefli t.d 2 2 þá fá bæði lið 1 stig en ef maður vinnur leikinn þá fær maður 3 stig. Stundum þegar maður gerir jafntefli fer maður í vítaspyrnukeppni það fer eftir því á hvernig fótboltamóti maður er á. Það eru til margar stöður í fótbolta þær heita framherji, kantmenn, miðjumenn, varnarmenn og markmenn. Ég er framherji og ég á að reyna að koma boltanum yfir marklínu hins liðsins. Kantmenn eiga að hlaupa upp kantana og gefa sendingar inn í vítateiginn og leggja upp mörk þeir eiga líka að koma í veg fyrir að kantmennirnir í hinu liðinu nái að leggja upp mörk. Miðjumenn eiga að sækja á markið og reyna að skora en þeir eiga líka að bakka í vörn og koma í veg fyrir að hitt liðið skori. Varnarmenn eiga að vinna boltann og reyna koma boltanum í burtu. Markmenn eiga að reyna að verja öll skot sem koma á markið og koma í veg fyrir að hitt liðið skori.