Ég heiti Róbert Orri Ragnarsson. Ég er 11 ára gamall og ég elska ekkert meira en fótbolta. Nema fjölskyldu mína. Ég á heima í Bæjargili 49 í Garðabæ. Ég æfi fótbolta með Stjörnunni og fer á 4 æfingar í viku. Ég er í A liði í fótbolta .Ég er líka sjúkur í enska boltann og horfi á nánast alla leiki og má ekki missa af neinum .Ég er gallharður Tottenham stuðningsmaður og þoli ekki þegar Tottenham tapar leik, þá verð ég í fýlu í allan daginn. En þegar þeir vinna leik sérstaklega á móti erfiðum liðum verð ég glaður í sirka 3 daga. Uppáhaldsleikmaðurinn minn í Tottenham er Gylfi Þór Sigurðsson. Ég byrjaði að halda með Tottenham svona 4 til 5 ára gamall. Ég hef líka gaman að tónlist og hlusta á gamlar hljómsveitir eins og Pixies og Led Zeppelin, Where Is My Mind er eitt af uppáhaldslögum mínum með Pixies.