Amma mín og afi eiga sumarbústað á Flúðum. Ég fer mjög oft þangað á sumrin og þegar að það er enginn skóli. Amma og afi eiga heitapott í bústaðnum og við förum oft í pottinn. Það er mjög flott útsýni á Flúðum og skemmtilegur golfvöllur rétt hjá bústaðnum. Pabbi minn og afi fara mjög oft á golfvöllinn og spila 18 holur. Ég fer stundum á golfvöllinn og spila nokkrar holur þótt mér finnist ekkert sérstakt í golfi. Flúðir eru nálægt Geysi og við fjölskyldan förum oft saman að horfa á Geysi gjósa.http://is.wikipedia.org/wiki/Geysir