Ég á frábæra fjölskyldu. Pabbi minn, Ragnar Þórður er 42 ára lögfræðingur og mamma mín, Guðrún Ingibjörg, er 40 ára íslenskukennari í Verzló. Bróðir minn heitir Ragnar Loki og er vitrasti 14 ára unglingur á landinu. Hann æfir líka fótbolta með Stjörnunni. Síðan er það systir mín Embla Rún. Hún er 4 ára og er á leikskólanum Hæðarbóli. Henni finnst skemmtilegast að stjórna á heimilinu! Við fjölskyldan eigum margar frábærar stundir saman, sérstaklega í fríum. Systir mín hefur aldrei farið til útlanda og er mjög spennt yfir því að prófa að fara í flugvél. Við ætlum að fara saman til útlanda sumarið 2014. Ragnar Loki hefur mikinn áuga á eðlisfræði, efnafræði og náttúrufræði og gengur alltaf vel í prófum, sérstaklega í þessum greinum! Bróðir minn heldur auðvitað líka með Tottenham eins og öll fjölskyldan og við horfum oft saman á leiki í sjónvarpinu og fórum líka gjarnan á völlinn, sérstaklega þegar Stjarnan er að keppa. Fjölskyldunni finnst líka gaman að fara saman í sumarbústaðinn og fíflast eins og sést hér að neðan þar sem ég tek lagið 3 ára gamall í bústaðnum á Flúðum.